
Gaman að twitt-veggurinn spilaði svona stóran þátt í Q&A á #BOTAC. Þetta var svo sannarlega umtalsVERT.
27. janúar, 2010
Það er verið að setja milljónir í að bjarga þessu húsi. Það var flutt á Grandann til að endurbyggja. Er ekki einhver að ruglast?
19. janúar, 2010
Gott lag – vaðandi groove :)
6. desember, 2009
Konur JAFNT sem karlar…
22. nóvember, 2009Íslandsbanki auglýsti nýlega eftir framkvæmdastjóra Miðengis. Eins og fram kemur í auglýsingunni er Miðengi dótturfélag Íslandsbanka sem sinnir umsýslu og eignarhaldi í félögum og fasteignum.
Í auglýsingunni er þessi setning: “Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.”
Tilgangur auglýsinga almennt er að hvetja fólk til að gera eitthvað, prófa eitthvað, velja eina vöru frekar en aðra eða hugsa/finnast eitthvað.
Hvers vegna þarf að hvetja konur JAFNT sem karla til að sækja um?
Það er verið að hvetja konur sérstaklega til að sækja um, en það er reynt að fela hvað þetta er furðulegt með því að bæta inn “jafnt sem karlar”. Ég veit ekki betur en að það sé ólöglegt að mismuna á grundvelli kynferðis. Því er svona setning algjörlega óþörf. Það er alltaf verið að biðja konur jafnt sem karla að sækja um.
Ef það er jafnt sóst eftir báðum kynjum, eða ef kynferði er ekki sérstakt atriði þarf ekki að taka fram kynferði. Með því að setja þessa setningu inn í auglýsinguna er búið að gera kynferði að mikilvægum hluta hæfileikakrafna.
Ég vona að Íslandbanki fái hæfa konu í starfið, þ.e. einstakling sem hefur fleiri góða kosti en að vera kona.

Nú þurfa menn að hysja uppum sig
9. nóvember, 2009Ég hef ekki bloggað í 2 mánuði. Reyndar hefur enginn kvartað – skil það ekki ![]()
Einhvern vegin er stórum hluta af blogg þörfinn svarað með því að posta linkum, auglýsingum og myndum á FACEBOOK. Svo er statusinn oft örblogg þar sem fólk kemur á framfæri skoðunum á öllu og engu í fáum orðum.
Það er einmitt þessi örblogg lausn sem gerði TWITTER svona vinsælt. Að örblogga er ekki eins mikil skuldbinding. Þarft ekki að skrifa langt mál, redda myndum og rökstyðja mál þitt. Það er svo auðvelt að slengja bara fram einhverri pælingu 20-30 orðum.
Einn virkast bloggari landsins um markaðsmál er án vafa Gummi hjá Icelandair, a.k.a. GAG. Þarna hefur safnast saman mikið af fróðleik um markaðsmál. Sérstaklega um markaðssetningu á netinu. Reyndar er ég byrjaður að bíða eftir bókinni hans Markaðssetning á netinu. Það verður gaman að fá íslenska markaðsbók.
En varðandi það að hysja uppum sig – nú ætla ég að fara að taka mig saman í andlitinu og blogga soldið um markaðsmál.

Útvarpsauglýsing í sjónvarp
28. ágúst, 2009Auglýsing eins og þessi er í raun ekkert nema útvarpsauglýsing í sjónvarpi. Einföld “Call to action” auglýsing.
Vangaveltan er hvort það borgar sig að setja svona auglýsingar í birtingu.
Framleiðslukostnaður á svona sjónvarpi er lítill. Birtingar í sjónvarpi er líka hægt að fá á sæmilegu verði.
Sjónvarp sem miðill er hljóð og sjónrænn, en ekki bara hljóðrænn eins og útvarp.
Bara pæla – förum betur í vangaveltur um birtingar síðar. Þá sérstaklega hvernig best er að blanda saman birtingum í mismunandi miðlum.

Auglýsingar á Facebook. Úttekt á verði.
28. ágúst, 2009Þegar þú auglýsir á Facebook getur þú valið hvort þú kýst að greiða fyrir hvern smell (CPC) eða hvort þú greiðir fyrir fjölda birtinga (CPM).
Það hefur verið verulega vinsælt að fara þá leið að greiða fyrir þá sem smella. Vera þannig bara að borga fyrir þá sem virkilega heimsækja þig. Ég valdi hina leiðina og greiddi fyrir fjölda birtinga.
Algengt er að greiða $0,13-0,18 fyrir hverjar 1.000 birtingar (CPM) og að sama skapi greiða $0,28-0,39 fyrir hvern smell.
Það segir sig ekki sjálft hvort er betra.
Eftirfarandi er mín reynsla af einni slíkri herferð eftir einn sólarhring.
Eftir einn sólarhring á FB og heildar eyðslu uppá $16 er þetta niðurstaðan:
Augl. birtist 128 þúsund sinnum.
Smellt var á hana 407 sinnum
Hvert smell kostaði $0,04
Eins og fyrr segir keypti ég impressions (CPM), ekki smelli (CPC).
Algengt er að borga $0,28 fyrir hvern smell (lægri mörk)
Ég borgaði $0,15 fyrir hverjar 1.000 birtingar.
Ég borgaði $16 fyrir daginn (hafa ber í huga að þú segir alltaf til um hvaða hámark þú er tilbúinn að borga)
Ég hefði þurfta að borga $113 ef ég hefði keypt smelli.
Endanleg greiðsla fyrir hvern smell er því $0,04 á smell, en ekki $0,28
Það hefði verið 600% dýrar að borga fyrir hvern smell.
Auðvitað er þetta enginn stóri dómur um að betra sé að greiða fyrir birtingar en smelli. Þetta er þó áhugaVERT innlegg. Ég mun uppfæra þessa tölu eftir því sem auglýsingin verður lengur inni.

Þetta verð ég einfaldlega að prufa
27. ágúst, 2009Nú er ég að vinna með félaga mínum í að setja upp fatamarkað sem verður í Laugardalshöllinni 27. ágúst til 6. september.
Til að gera langa sögu stuttu leigðum við Laugardalshöllina. Fórum til London (ég fékk ekki að fara – ekki nógu smart) og keyptum nýjar vörur.
Með þessu er hægt að bjóða nýjar vörur á lágmarksverði því við erum með EKKERT overhead ef ég má sletta
Ástæðan fyrir þessari færslu er þó önnur. Ég var að útbúa Facebook Page fyrir Fatamarkaðinn og þarf að prófa að setja inn svona FAN BOX sem í boði eru á FACEBOOK.
Þar sem þetta er eina síðan sem ég ræð yfir kemur boxið hér………… Jæja, virkar ekki sem skyldi
Fatamarkaðurinn Laugardalshöllinni on Facebook









