Flest höfum við séð, eða munum fjótlega sjá, nýja profile lookið á FACEBOOK.
Hér er umfjöllun 60 minutes um málið.


Ég tók mig til um daginn og hlustaði á plötuna Happiness með Hurts.
Ég þekkti ekkert til bandsins. Hafði reyndar heyrt þetta lag sem var vinsælt með þeim (Wonderful life) en vissi ekkert hvaða band þetta var.
Við fyrstu hlustun er ég orðinn aðdáandi. Rosalega jafngóð plata.
Það besta er að Hurts er að koma til landsins. Snilld þegar þetta gerist, þ.e. ég byrja að fíla eitthvað band, og það mætir bara til landsins. Þetta gerðist síðast þegar A-ha kom hingað 1987.
Hurts spila þann 20. mars í Vodafone höllinni! Ég verð þar.
Hér er eitt jólalag með þeim:
Svo þessi tvö – mikil snilld.


Ef þú kemur að sölu- eða markaðsmálum áttu að þekkja P-in fjögur: product, place, promotion og price. Það er alveg basic. Þrátt fyrir að hlutirnir breytist, allt í heiminum sé hverfult, er sumt sem stenst tímans tönn – þar á meðal eru P-in.
Í eftirfarandi myndbandi leiðir MAÐURINN þig í sannleikann um hvers vegna P-in hafa staðist tönn tímans.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDBAND
Ps. fyrir áhugasama er þýðingin á product, price, place, promotion á íslensku: vara, verð, vettvangur, vegsauki.
Ekki allir eins hressir með þetta orð – vegsauki. Ég hef alltaf kunnað vel við það.
Ekki tapa gleðinni

Mér þætti gaman að hitta þann mann (sérstaklega ef um karlmann væri að ræða) sem myndi þora að gera auglýsingu sem er með “punch-line” sem gengur útá að drepa eiginkonuna.
Mcdonalds gerðu þessa auglýsingu 2006. Hún var nú aldrei sýnd hér á landi – reyndar er hún ekkert frábær, en það er ekki punturinn. Það væri gaman að vita hvort einhver myndi þora að gera svona auglýsingu í dag í ljósi væntanlegra viðbragða jafn- og kvennréttindafrömuða.
Endalínan í auglýsingunni er “Every tima a good time” og það gekk svo sannarlega ekki útá að gamna sér með sinni heitt elskuðu.
Hver heilvita maður veit auðvitað að ekki er verið að hvetja til þessa að menn drepi konur sínar en líklegt verður að telja að ótti við viðbrögð lítilla háværra hópa myndu koma í veg fyrir að nokkur þorði að gera svo afgerandi auglýsingu, hvort sem auglýsingin væri góður til að koma skilaboðunum til áleiðis eður ei.
Það er það sem er sorglegt við pólitíska rétthugsun ( http://bit.ly/15iuU2 ), þegar hún drepur niður frumleika. Þor auglýsenda til að gera það sem er athyglisvert og áhugavert, svo ekki sé talað um umtalsvert.

Ég nenni ekki að fjalla um andlát MJ. Það hefur ekki mikið með mín áhugamál að gera. Það er þó áhugavert að sjá hvernig fjölmiðlarnir láta. Þessi teiknimynd útskýrir það nokkuð vel http://bit.ly/mRBUa
Það sem er þó áhugavert er að skoða feril Jackson í auglýsingum. Ólíkt stjörnum dagsins í dag, átti hann ekki mjög langan eða mikinn feril í auglýsingum.
Hann var auðvitað á samningi hjá Pepsi, sem m.a. náði að kveikja í hárinu á honum, og svo síðar hjá LA Gear.
Þessi fyrri er frá 1984.
Síðari Pepsi auglýsingin er frá 1987.
Síðasta auglýsingin hér er svo LA Gear auglýsing sem hann gerði – klárlega sísta auglýsingin.
Í þessu rausi er ekki neinn loka punktur. Nema kannski ef vera skyldi pæling varðandi hætturnar sem geta verið fólgnar í að nota frægt fólks í auglýsingar.
Þegar fyrirtæki velja stjörnu til að auglýsa vöruna sýna er að mörgu að huga og það getur verið verulega varasamt. Það getur líka verið mjög árangursríkt. Ég fjalla kannski betur um það síðar.
- C5B8016B9B3D482CF8F038F022E69941

Hann er enginn sauður hann Edward de Bono. Hann er sérfræðingur í skapandi hugsun.