Archive for the ‘Markaðsfræði’ Category

h1

Það er öllum sama um þig*

6. maí, 2010

* áður birt á www.vert.is

það eru ansi mörg fyrirtæki haldin þeirri ranghugmynd að fólk hafi áhuga á því sem þau eru að gera.

Það er rangt.

Fólk hefur áhuga á því sem snertir það sjálft. Það hefur áhuga á því sem léttir þeim lífið, eykur velferð þeirra, bætir hag þeirra, eflir það að einhverju leiti, eða bara skemmtir því.

Fólki er slétt sama um þitt fyrirtæki í sjálfusér. Ef fyrirtæki er ekki að gera eitthvað sem snertir hag fólks, mun fólk ekki versla við viðkomandi fyrirtæki og ekki fylgjast með því.

Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að samfélagsmiðlum. Því þrátt fyrir að ég kaupi ákveðna vöru, þýðir það ekki að mig langi endilega að vera vinur hennar. Stundum er ég bara að kaupa sápu. Það þýðir ekki að ég sé sápu aðdáandi. Það þýðir bara að mig langi ekki ganga um eins og skítalabbi.

Ég hef ekki áhuga á að gerast aðdándi sápuframleiðandans á Facebook, bara vegna þess að hann setti upp síðu og byrjaði að setja inn myndir af vörunni og segja mér að bjóða öllum vinum mínum að vera aðdáendur líka.

Ef þú sem fyrirtæki ert að pæla í að mæta til leiks á samfélgsmiðlunum skaltu vera viss um að vera með stefnu. Samfélagsmiðlar eru eins og hvert annað markaðstól. Það þarf að vera plan. Hvað ætlar þú að gera, fyrir hvern og hvernig. Ef þú ætlar ekki að gera eitthvað fyrir “aðdáendur” þína er tilgangslaust að byrja.

Ef þú ert ekki að gera eitthvað fyrir fólk, er því sama um þig (sem fyrirtæki).

h1

Þú ert alltaf að selja-þó þú sért ekki sölumaður

20. apríl, 2010

Að “selja” hefur stundum fengið neikvæða umfjöllun. Oft er eins og fólk setji samasemmerki milli þess að selja og að pranga eða blekkja.

En þú ert alltaf að selja. Selja málstað, selja hugmynd, selja sjónarmið, selja þig. Það er ekki neikvætt. Öllu er vissulega hægt að ofgera og flest má misnota. En heilt yfir þurfa allir að kunna eitthvað fyrir sér í sölumennsku. Bæði í einka- og atvinnulífinu.

Eftirfarandi eru nokkur góð ráð frá einum af hæfari sölumönnum síðustu aldar, David Ogilvy.

Smelltu hér fyrir neðan til að fletta kynningunni:

Ekki tap’enni ;)

h1

Áætlanir gera ekkert gagn…

7. mars, 2010

Ég held að það sé allt of algengt að miklum tíma sé eytt í
áætlanagerð, en svo er engu eytt í framkvæmdina. Hvorki tíma né
peningum.
Þetta á við um einstklinga sem ætla að gera ýmislegt í einkalífinu og
plana og plana, en gera svo ekkert.
Ekki síður á þetta við um fyrirtæki. Eftir að búið að gera áætlanir
þarf að setja kraft í framkvæmdina. Krafturinn í flestum tilfellum er
peningar og mannafli. Það þarf að gera ráð fyrir því að þeir sem eiga
að framkvæma áætlanirnar hafi kunnáttu og tíma til að framkvæma svo er
eftirfylgnin lykillinn. Það verður að vera einhver nógu “valdamikill”
sem fylgir verkefninu eftir. Er ábyrgur.

Að lokum verð ég samt að segja þetta – það er fátt verra en vond
áætlun sem er vel framkvæmd. Því er fyrsta forsendan að áætlunin sé
góð.

Posted via email from Hörður Harðarson á posterous

h1

Nú þurfa menn að hysja uppum sig

9. nóvember, 2009

Ég hef ekki bloggað í 2 mánuði. Reyndar hefur enginn kvartað – skil það ekki :)
Einhvern vegin er stórum hluta af blogg þörfinn svarað með því að posta linkum, auglýsingum og myndum á FACEBOOK. Svo er statusinn oft örblogg þar sem fólk kemur á framfæri skoðunum á öllu og engu í fáum orðum.

Það er einmitt þessi örblogg lausn sem gerði TWITTER svona vinsælt. Að örblogga er ekki eins mikil skuldbinding. Þarft ekki að skrifa langt mál, redda myndum og rökstyðja mál þitt. Það er svo auðvelt að slengja bara fram einhverri pælingu 20-30 orðum.

Einn virkast bloggari landsins um markaðsmál er án vafa Gummi hjá Icelandair, a.k.a. GAG. Þarna hefur safnast saman mikið af fróðleik um markaðsmál. Sérstaklega um markaðssetningu á netinu. Reyndar er ég byrjaður að bíða eftir bókinni hans Markaðssetning á netinu. Það verður gaman að fá íslenska markaðsbók.

En varðandi það að hysja uppum sig – nú ætla ég að fara að taka mig saman í andlitinu og blogga soldið um markaðsmál.

h1

Sem betur fer stenst sumt tönn tímans

6. ágúst, 2009

Ef þú kemur að sölu- eða markaðsmálum áttu að þekkja P-in fjögur: product, place, promotion og price.  Það er alveg basic.  Þrátt fyrir að hlutirnir breytist, allt í heiminum sé hverfult, er sumt sem stenst tímans tönn – þar á meðal eru P-in.

Í eftirfarandi myndbandi leiðir MAÐURINN þig í sannleikann um hvers vegna P-in hafa staðist tönn tímans.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDBAND

Ps. fyrir áhugasama er þýðingin á product, price, place, promotion á íslensku: vara, verð, vettvangur, vegsauki.
Ekki allir eins hressir með þetta orð – vegsauki.  Ég hef alltaf  kunnað vel við það.

Ekki tapa gleðinni ;)

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.