Posts Tagged ‘jafnrétti’

h1

Konur JAFNT sem karlar…

22. nóvember, 2009

Íslandsbanki auglýsti nýlega eftir framkvæmdastjóra Miðengis. Eins og fram kemur í auglýsingunni er Miðengi dótturfélag Íslandsbanka sem sinnir umsýslu og eignarhaldi í félögum og fasteignum.

Auglýsing frá Miðengi

Smelltu til að fá stærri mynd

Í auglýsingunni er þessi setning: “Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.”

Tilgangur auglýsinga almennt er að hvetja fólk til að gera eitthvað, prófa eitthvað, velja eina vöru frekar en aðra eða hugsa/finnast eitthvað.

Hvers vegna þarf að hvetja konur JAFNT sem karla til að sækja um?

Það er verið að hvetja konur sérstaklega til að sækja um, en það er reynt að fela hvað þetta er furðulegt með því að bæta inn “jafnt sem karlar”. Ég veit ekki betur en að það sé ólöglegt að mismuna á grundvelli kynferðis. Því er svona setning algjörlega óþörf. Það er alltaf verið að biðja konur jafnt sem karla að sækja um.

Ef það er jafnt sóst eftir báðum kynjum, eða ef kynferði er ekki sérstakt atriði þarf ekki að taka fram kynferði. Með því að setja þessa setningu inn í auglýsinguna er búið að gera kynferði að mikilvægum hluta hæfileikakrafna.

Ég vona að Íslandbanki fái hæfa konu í starfið, þ.e. einstakling sem hefur fleiri góða kosti en að vera kona.

h1

Pólitísk rétthugsun er tík

8. júlí, 2009

Mér þætti gaman að hitta þann mann (sérstaklega ef um karlmann væri að ræða) sem myndi þora að gera auglýsingu sem er með “punch-line” sem gengur útá að drepa eiginkonuna.

Mcdonalds gerðu þessa auglýsingu 2006.  Hún var nú aldrei sýnd hér á landi – reyndar er hún ekkert frábær, en það er ekki punturinn.  Það væri gaman að vita hvort einhver myndi þora að gera svona auglýsingu í dag í ljósi væntanlegra viðbragða jafn- og kvennréttindafrömuða.

Endalínan í auglýsingunni er “Every tima a good time” og það gekk svo sannarlega ekki útá að gamna sér með sinni heitt elskuðu.

Hver heilvita maður veit auðvitað að ekki er verið að hvetja til þessa að menn drepi konur sínar en líklegt verður að telja að ótti við viðbrögð lítilla háværra hópa myndu koma í veg fyrir að nokkur þorði að gera svo afgerandi auglýsingu, hvort sem auglýsingin væri góður til að koma skilaboðunum til áleiðis eður ei.

Það er það sem er sorglegt við pólitíska rétthugsun ( http://bit.ly/15iuU2 ), þegar hún drepur niður frumleika.  Þor auglýsenda til að gera það sem er athyglisvert og áhugavert, svo ekki sé talað um umtalsvert.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.