Mér finnst eins og maður eigi að vera með eitthvað svona manifesto fyrir bloggið sitt sem fyrstu færslu. Ég hef það samt á tilfinningunni að geðsjúklingar fyrri tíma hafi soldið eyðilegt “manifesto”. Það eru alltaf einhverjir öfgamenn, geðsjúklingar eða morðingjar sem senda frá sér manifesto, t.d. The Anarchist Manifesto, The Communist Manifesto og svo var Uni-bomberinn með manifesto.
Ég reyni þá bara að nálgast þetta eins og fyrirtæki. Set fram stefnu og áætlun. Set jafnvel niður nokkur gildi til að vera mér viti á ritvellinum; Heiðarleiki, umhyggja, framsækni, áræðni. OJJJJ. Sleppum þessum gildum, sleppum reyndar líka stefnu og áætlun.
Þar sem ég mun að mestu skrifa um markaðsmál og þá kannski sérstaklega um branding ætti ég að setja niður Brand mantra fyrir bloggið.
Brand mantra er 3-5 orð sem lýsa hvað vörumerkið (bloggið í þessu tilfelli) er/á að vera og ekki síður hvað það er ekki, eða á ekki að vera.
Eigum við þá ekki að segja að brand matrað fyrir þetta blogg sé:
Áhugaverðar markaðslegar vangaveltur
Áhugverðar því ella er það tilgangslaust
Markaðslegar, í merkingunni markaðsmál, því það er málefnið sem ég mun fjalla um
Vangaveltur því þetta er ekki fræði og birt án ábyrgðar.
Like this:
Be the first to like this post.